Skattalækkanir til kjarabóta
Prófessor Pascal Salin (París) skrifar um skattasamkeppni frá hagfræðilegu sjónarmiði. Dr. Fredrik Bergström (Stokkhólmi) skrifar um, hvernig Svíar hafa dregist aftur úr öðrum þjóðum vegna þungrar skattbyrði. Dr. Daniel Mitchell (Washington-borg) skrifar um tilraunir til að hefta skattasamkeppni. Pierre Bessard (Lausanne) skrifar um stefnu Svisslendinga í skattamálum og hvað aðrar þjóðir geta lært af þeim. Prófessor Brendan Walsh (Dublin) skrifar um stefnu Íra í skattamálum og hvað aðrar þjóðir geta lært af þeim. Prófessor Hannes H. Gissurarson (Reykjavík) skrifar um íslenska efnahagsundrið, umskiptin í hagkerfinu 1991-2007. Prófessor Edward Prescott greinir tengslin milli skattlagningar og tilhneigingar fólks til að skapa verðmæti. Prófessor Ragnar Árnason skrifar um jöfnunaráhrif tekjuskatta.
Ritstjórar bókarinnar eru prófessor Hannes H. Gissurarson og dr. Tryggvi Þór Herbertsson.
Háskólaútgáfan gefur bókina út fyrir Félagsvísindastofnun. Útgáfutími: 25. febrúar 2008.









